Dagbók og atvik
Skráðu atvik með flokki, staðsetningu, myndum og sniðnum texta. Sniðmát fyrir hvern flokk bæta við reitum og gátlista, og framhaldsbókanir halda sögunni saman.
Vaktkerfi fyrir öryggisgæslu
Öryggisvakt heldur utan um dagbók og atvik, eftirlitsferðir með NFC-merkjum, vaktir, verkefni og skýrslur — í vafranum fyrir stjórnstöðina og í símanum fyrir vaktmanninn á ferðinni.
Eiginleikar
Öryggisvakt er smíðuð með öryggisdeildum og vaktfyrirtækjum. Hver eining er einföld í daglegri notkun og talar við hinar.
Skráðu atvik með flokki, staðsetningu, myndum og sniðnum texta. Sniðmát fyrir hvern flokk bæta við reitum og gátlista, og framhaldsbókanir halda sögunni saman.
NFC-merki á vettvangi, skönnuð með símanum. Endurteknar ferðir verða til sjálfkrafa og kort á teikningu hússins sýnir leiðina sem var gengin.
Áminningar á föstum tímum — að læsa, hringja inn eða yfirfara dagbók. Þeir sem eru á vakt fá þær með hljóði og staðfesta; það sem gleymist er skráð og stjórnendur látnir vita.
Morgun-, dag- og næturvaktir á hverri staðsetningu. Vaktmenn merkja hvenær þeir geta unnið og biðja um vaktaskipti; varðstjórinn samþykkir.
Bráðaverkefni og ferðir með upphafs- og áfangastað, tegund og forgangi. Lokið-staða og hver lauk verkinu skráð.
Veikindi, frí og aðrar fjarvistir á einum stað — og þeir sem eru fjarverandi eru merktir sjálfkrafa í vaktskýrslunni.
Lyklar, aðgangskort og talstöðvar í útláni: hver er með hvað, hvenær á að skila — og tilkynning ef það gleymist.
Gestir og verktakar skráðir inn og út í móttökunni, með prentvænum lista yfir alla á staðnum fyrir nafnakall við rýmingu.
Atvika-, verkefna- og eftirlitsskýrslur fyrir hvaða tímabil sem er, bornar saman við tímabilið á undan. Sæktu gögnin í CSV.
Sameiginleg rás fyrir alla og bein samtöl, með viðveru og „Séð“ í rauntíma. Engin þörf á sérstöku spjallforriti fyrir vaktina.
Dagbókin og verkefnin uppfærast strax hjá öllum sem hafa þau opin, og bjallan lætur vita þegar þér er úthlutað ferð eða bætt er við atvik sem þú skráðir.
Raðaðu reitunum á mælaborðinu, stækkaðu þá og veldu hvað birtist: á vakt núna, föst verkefni, atvik, búnaður í útláni, gestir á staðnum og flýtileiðir á kerfin sem vaktin notar.
Ctrl+K opnar leit að atvikum, verkefnum og síðum á öllum staðsetningum — og skráir nýtt atvik eða verkefni án þess að fara af síðunni.
„Bæta“-hnappurinn lagar stafsetningu og orðalag atvikslýsingar með einum smelli. Valkvætt — og eigin leiðbeiningar fyrir hvern viðskiptavin.
Stjórnandi, varðstjóri og starfsmaður — og eigin hlutverk þar sem þú velur hvað má lesa, stofna, breyta og eyða. Prófaðu hlutverk til að sjá kerfið eins og notendur þess.
Dagbók
Allt sem gerist á vaktinni fer í dagbókina — úr stjórnstöðinni eða beint úr símanum. Atvik flokkast eftir tegund og staðsetningu og fylgja vaktinni þar til þeim er lokað.
Eftirlitsferðir
Komdu NFC-merkjum fyrir á útidyrum, neyðarútgöngum, tæknirýmum og bílakjöllurum. Vaktmaðurinn skannar þau með símanum og þú sérð hvenær, hver og hvar — ferð fyrir ferð.
Föst verkefni
Læsa aðalinngangi kl. 22, hringja í stjórnstöð á tveggja tíma fresti, yfirfara vaktadagbók fyrir vaktaskipti. Öryggisvakt minnir þá sem eru á vakt á réttum tíma — og heldur utan um hvort það var gert.
Vaktskýrsla
Skilgreindu vakttegundirnar einu sinni og Öryggisvakt býr til vaktirnar fyrir hverja staðsetningu fram í tímann. Varðstjórinn raðar svo fólki á vaktirnar — og sér hverjir eru lausir.
Búnaður
Skráðu lykla, aðgangskort, talstöðvar og annan búnað og lánaðu hann starfsfólki, verktökum eða gestum. Öryggisvakt veit hver er með hvað — og hvenær á að skila.
Gestaskrá
Skráðu gesti, verktaka og birgja inn og út í móttökunni. Þú sérð alltaf hverjir eru á staðnum, hjá hverjum og hvenær þeir ættu að fara.
Skýrslur
Hvað gerðist í mánuðinum, hvar og hvenær? Skýrslurnar svara því á augabragði — fyrir alla staðsetningar eða eina í einu.
Snjallsímaapp
Android-app sem gerir símann að eftirlitstæki: NFC-skönnun, atvik, myndir og spjall við vaktina. Skannanir virka líka þar sem ekkert netsamband er.





Á sameiginlegum síma velur vaktmaðurinn sig, með PIN-númeri ef þess er krafist, og skráir sig af vakt í lokin. Á eigin aðgangi er hann alltaf hann sjálfur.
Skilaboð frá samstarfsfólki berast með hljóði og tilkynningu, líka þegar appið er í bakgrunni.
Skannanir, athugasemdir og myndir bíða í símanum í kjöllurum og lyftustokkum og sendast sjálfkrafa þegar samband næst.
Netfang og sex stafa kóði í tölvupósti. Sameiginlegir símar haldast innskráðir, svo vaktin þarf aldrei að bíða eftir lykilorði.
Skjámyndir
Svona lítur Öryggisvakt út í vafranum. Myndirnar eru úr kynningarvef með tilbúnum gögnum — restina sýnum við þér í kynningu.
Öryggi og stjórnun
Gögnin þín eru aðskilin frá gögnum annarra og aðgangurinn eins þröngur og þú vilt hafa hann.
Hver viðskiptavinur fær sitt eigið lén, sitt eigið gagnasvæði og sitt eigið merki og nafn í kerfinu.
Veldu hvað hvert hlutverk má lesa, stofna, breyta og eyða í hverri einingu — eigin færslur eða allra — og takmarkaðu við staðsetningar. Prófaðu hlutverkið áður en það fer í notkun, og enginn getur veitt öðrum meira en hann hefur sjálfur.
Innskráning með tengli í tölvupósti eða passkey — engin lykilorð á vefnum sem geta lekið. Óvirkir notendur eru skráðir út úr öllum tækjum.
Leyfðu vefinn og appið aðeins frá tilteknum IP-tölum eða netum — til dæmis aðeins úr stjórnstöðinni.
Innskráningar og breytingar á lykilgögnum eru skráðar, svo alltaf má sjá hver gerði hvað og hvenær.
Valkvæður MCP-þjónn veitir Claude og öðrum gervigreindartólum aðgang að gögnunum með persónulegum, tímabundnum lyklum — og getur, ef þið leyfið, skipulagt eftirlitsferðir.
Að byrja
Frá fyrsta fundi að fyrstu eftirlitsferð í þremur skrefum.
Við förum yfir hvernig gæslan er skipulögð hjá ykkur og sýnum kerfið með ykkar staðsetningar og vaktir í huga.
Við setjum vefinn upp á ykkar léni með ykkar merki. Stjórnandi fær innskráningu í tölvupósti og stillir staðsetningar, notendur og hlutverk.
Vaktmenn sækja appið á Google Play og skrá sig inn með netfangi og kóða. NFC-merkin fara upp og fyrstu ferðirnar eru tilbúnar.
Appið er fyrir Android-síma með NFC. Vefurinn virkar í öllum nýlegum vöfrum — líka í iPhone, spjaldtölvum og á tölvum stjórnstöðvarinnar.
Venjuleg NFC-merki duga. Appið les auðkenni merkisins, svo þið getið notað merki sem þið eigið þegar eða keypt ný.
Skannanir, athugasemdir og myndir geymast í símanum og sendast sjálfkrafa þegar samband næst, til dæmis þegar vaktmaðurinn kemur upp úr kjallaranum.
Já. Atvik, vaktir, föst verkefni, búnaður og gestir tilheyra staðsetningu, og hægt er að takmarka notendur við sínar staðsetningar.
Já. Með hlutverkum ráðið þið hvaða einingar hver notandi sér, og spjalli og gervigreind má slökkva alveg á.
Já. Vefurinn og appið eru bæði á íslensku og ensku og hver notandi velur sitt tungumál.
Þið ráðið yfir gögnunum. Hver viðskiptavinur er með eigið lén og aðskilið gagnasvæði, og við lok samnings er gögnunum eytt eða þau afhent ykkur. Nánar í persónuverndarstefnunni.
Segðu okkur aðeins frá starfseminni og við höfum samband. Við sýnum þér kerfið með þínar staðsetningar og vaktir í huga og setjum upp vef fyrir þína öryggisgæslu.